Slogan
Vefkerfi eftir þínu sniði
Þannig vinnum við

Eins og fram kemur í köflunum um vörur og sérlausnir Idega, bjóðum við ýmist:

  • tilbúin kerfi í þjónustuveitu,
  • stöðluð kerfi sem hægt er að aðlaga fyrir hvern viðskiptavin,
  • sérhannaðar lausnir.

Þjónustuveita:
Ferðaþjónustuaðilar geta skráð sig í miðlægan ferðaþjónustugrunn Idega, sem notaður er til að selja úr á netinu. Allt er til reiðu fyrir nýjan aðila í tilbúnu kerfi.

Fyrirhugað er að fjölga vörum sem seldar verða í þjónustuveitu.

Stöðluð kerfi:
Idega hefur þróað og innleitt ýmis kerfi fyrir viðskiptavini sem nýtast að mestu eða öllu leyti fyrir fleiri aðila. Í þeim tilfellum er hægt að byggja þarfagreiningu á tilbúnu kerfi með því að skilgreina frávik. Frávik eru aðlaganir að sérþörfum og viðbótum við tilbúið kerfi.

Ferlið frá hugmynd að innleiðingu er þannig:

  1. Kynning á kerfi.
  2. Gerðar skissur fyrir breytingar og viðbætur.
  3. Tíma- og kostnaðaráætlun.
  4. Samningur.
  5. Hönnun og forritun á skilgreindum aðlögunum.
  6. Prófanir og innleiðing.

Hægt er að ná verulegum sparnaði ef Idega á þegar til kerfi eða stóra kerfishluta sem falla vel að þörfum viðskiptavinarins. Fáir framleiðendur vefkerfa huga eins vel að stöðlun og endurnýtanleika lausna eins og Idega gerir.

Sérhannaðar lausnir:
Í þeim tilvikum þegar um er að ræða mjög sérhæfðar þarfir viðskiptavinar sem þarf að kerfissetja frá grunni, er ferlið viðameira og tímafrekara. Kostnaður við innleiðingu slíkra verkefna er auk þess meiri, því ekki er hægt að endurnýta tilbúinn hugbúnað.

Þrátt fyrir að svo sé þarf aldrei að þróa kjarnavirkni, s.s. notenda- og aðgangsstýringar, efnisstjórnun, skjalameðhöndlun o.þ.h. Allt slíkt kemur með IdegaWeb ePlatform, sem allar lausnir frá Idega byggja á. Í mörgum tilfellum er auk þess þegar vel er að gáð hægt að endurnýta kerfiseiningar með því að gefa tiltekinni virkni nýtt samhengi. Þá er um að ræða tilbúna lausn fyrir allt aðra notkun, sem í grundvallaratriðum framkvæmir hliðstæða virkni.

Ferlið frá hugmynd að innleiðingu er þannig:

  1. Almenn þarfagreining og tillögur.
  2. Tæknileg greining og grófhönnun lausnar með prótótýpu.
  3. Yfirferð og endurgjöf.
  4. Tíma- og kostnaðaráætlanir.
  5. Samningur.
  6. Uppsetning á tilbúnum kerfishlutum.
  7. Hönnun og nákvæm prótótýpa á viðmótshlutum.
  8. Forritun lausnar.
  9. Prófanir og innleiðing.

Eins og sjá má er ferlið brotið upp í marga þætti í upphafi með það fyrir augum að tryggja eins og kostur er að allar þarfir séu vel skilgreindar og ekki sé misskilningur á milli aðila. Þess vegna er m.a. lögð rík áhersla á allt viðmót með skissum og prótótýpum.

Efst á síðu
Footer
©2009 Allur réttur áskilinn IOS ehf | Hlíðarsmára 2 | 201 Kópavogur | Sími 554 7557 | Hafðu samband